Árborg segir upp 57 starfsmönnum

Frá Selfossi.
Frá Selfossi. mbl.is/Sigurður Bogi

Sveit­ar­fé­lagið Árborg sagði í dag upp ráðning­ar­samn­ing­um við 57 starfs­menn sveit­ar­fé­lags­ins um leið og til­kynnt var um 5% launa­lækk­un æðstu stjórn­enda, bæj­ar­stjóra og sviðsstjóra.

Þetta kem­ur fram á vef sveit­ar­fé­lags­ins. Seg­ir þar að þess­ar aðgerðir séu liður í hagræðingu í rekstri sveit­ar­fé­lags­ins sem gripið  sé til vegna erfiðrar fjár­hags­stöðu sem kynnt var íbú­um í síðustu viku. 

Alls starfa í dag um 1047 manns í 827 stöðugild­um hjá Sveit­ar­fé­lag­inu Árborg og þær aðgerðir sem nú hef­ur verið gripið til snerta öll rekstr­ar­svið bæj­ar­ins og hafa áhrif á um 100 starfs­menn. Upp­sagn­ar­frest­ur starfs­manna er sam­kvæmt samn­ing­um á bil­inu 3 til 6 mánuðir.

Á vef Árborg­ar seg­ir, að nán­ari upp­lýs­ing­ar um áhrif upp­sagn­anna á starf­semi og þjón­ustu sveit­ar­fé­lags­ins verði kynnt­ar síðar, en á þess­um tíma­punkti muni stjórn­end­ur sveit­ar­fé­lags­ins ekki tjá sig frek­ar um málið.

 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert