Segir Sverri neita að tjá sig við yfir­heyrslur

Yfir tvö hundruð lögregluþjónar tóku þátt í aðgerðunum.
Yfir tvö hundruð lögregluþjónar tóku þátt í aðgerðunum. Ljósmynd/Brasilíska alríkislögreglan

Yf­ir­heyrsl­ur yfir Sverri Þór Gunn­ars­syni sem hand­tek­inn var á heim­ili sínu í borg­inni Rio de Jan­eiro í Bras­il­íu á dög­un­um eru hafn­ar. Sverr­ir hef­ur neitað að svara spurn­ing­um bras­il­ísku al­rík­is­lög­regl­unn­ar. Þá er talið lík­legt að hann verði ákærður inn­an þess fimmtán daga tím­aramma sem gef­inn er þar í landi til þess að ákæra eft­ir hand­töku.

Þetta staðfest­ir Thiago Gia­varotti, yf­ir­lög­regluþjónn inn­an bras­il­ísku al­rík­is­lög­regl­unn­ar, í sam­tali við mbl.is. Hann seg­ir bras­il­ísku lög­regl­una hafa sterk sönn­un­ar­gögn und­ir hönd­um. Verði Sverr­ir ákærður sé lík­legt að það verði fyr­ir fíkni­efna­smygl og pen­ingaþvætti. 

Sverr­ir var hand­tek­inn í um­fangs­mikl­um aðgerðum bras­il­ísku al­rík­is­lög­regl­unn­ar sem fram­kvæmd­ar voru víða um landið þann 12. apríl síðastliðinn. Aðgerðirn­ar voru kallaðar „Operati­on Match Po­int“ og tóku meira en tvö hundruð lög­regluþjón­ar þátt, þar á meðal frá Íslandi og Ítal­íu. 

Í dag eru átta dag­ar liðnir frá því að Sverr­ir var hand­tek­inn.

Lagt hald á fíkni­efni, fast­eign­ir, öku­tæki og skip

Í aðgerðunum lagði lög­regla hald á 65 kíló af kókaíni, 225 kíló af kanna­bis­efn­um og 57 fast­eign­ir auk öku­tækja og skipa ásamt því að loka fyr­ir banka­reikn­inga 43 ein­stak­linga.

Lög­regl­an tel­ur verðmæti eign­anna sem lagt var hald á geta numið um 150 millj­óna bras­il­ísks ríal eða um 4,2 millj­örðum ís­lenskra króna.

Greint hef­ur verið frá því að Match Po­int-aðgerðin sé tal­in vera af frem­ur um­fangs­mikl­um toga og Gia­varotti staðfest­ir það. Hann tek­ur þó fram að aðgerðir sem þess­ar séu fram­kvæmd­ar tvisvar til þris­var í viku í Bras­il­íu. 

Gia­varotti seg­ir enga aðra Íslend­inga en Sverri vera til rann­sókn­ar vegna máls­ins, það hafi þó ekki alltaf verið raun­in. Ann­ar Íslend­ing­ur hafi verið til rann­sókn­ar en hann hafi látið lífið úr krabba­meini fyrr á þessu ári á meðan að rann­sókn stóð yfir. 

Fyrri sak­fell­ing lík­leg til þyng­ing­ar 

Árið 2012 hlaut Sverr­ir tutt­ugu og tveggja ára dóm í Bras­il­íu fyr­ir inn­flutn­ing á 46 þúsund e-töfl­um til lands­ins. Vegna fyrri dóms er hann enn á skil­orði og seg­ir Gia­varotti þá staðreynd vissu­lega geta haft áhrif á þyngd dóms­ins sem Sverr­ir myndi hljóta yrði hann sak­felld­ur í þetta sinn. Eng­in upp­skrift sé þó til í þess­um efn­um og því erfitt að segja til um hversu mik­il áhrif fyrra málið muni hafa. 

Ákær­urn­ar sem Sverr­ir eigi nú yfir höfði sér hafi mis­stór­an refsiramma. Fíkni­efna­smygl beri með sér lág­mark fimm ára og há­mark tutt­ugu ára fang­elsis­vist en pen­ingaþvætti lág­mark þrjú og há­mark tíu ár.

Stjórnuðu í sam­ein­ingu 

Gia­varotti seg­ir leiðir Sverr­is og al­rík­is­lög­regl­unn­ar hafa legið sam­an vegna annarr­ar rann­sókn­ar. 

„Það var aðgerð í Flori­ana­pol­is þar sem verið var að rann­saka bras­il­ísk­an glæpa­mann. Rann­sókn­in hófst árið 2020 en var svo sett á pásu í nokkra mánuði vegna far­ald­urs­ins. Eft­ir nokkra skoðun varð al­rík­is­lög­regl­an vör við  [Sverri] Gunn­ars­son. Glæp­ir hans voru rann­sakaðir hér og af því að við viss­um að hann væri viðriðinn við glæpi sem framd­ir voru á Íslandi höfðum við sam­band við [ís­lensk] yf­ir­völd,“ seg­ir Gia­varotti. 

Bras­il­ísk­ir miðlar greindu frá því að starf­semi glæpa­sam­tak­anna hafi tal­ist óvenju­leg vegna þess að  þau selji marg­ar teg­und­ir fíkni­efna í stór­um og smá­um skömmt­um auk þess sem þau sjái einnig um inn- og út­flutn­ing efn­anna. Þá nýti sam­tök­in báta í flutn­ingi á kanna­bis­efn­um en leiðirn­ar sem hafi verið notaðar til flutn­ings hafi meðal ann­ars farið með strönd­um Afr­íku.

Gia­varotti seg­ir Sverri og bras­il­ísk­an karl­mann hafa stjórnað starf­sem­inni í sam­ein­ingu.

„Þeir voru í viðskipt­um sam­an. Stund­um gat ann­ar keypt fíkni­efni af hinum. Þeir áttu líka sam­eig­in­lega kúnna þannig að ef ann­ar gat ekki boðið kúnn­an­um fíkni­efni gat hinn gert það. [...] Þeir voru vin­ir og viðskipta­fé­lag­ar ekki yf­ir­maður og starfsmaður.“ 

Framsal ekki mögu­leiki

Spurður að því hvort al­gengt sé að er­lend­ir aðilar séu hluti af starf­semi af þessu tagi í Bras­il­íu seg­ir Gia­varotti svo ekki vera, yf­ir­leitt séu ein­stak­ling­arn­ir heima­menn. 

Tutt­ugu og átta voru hand­tekn­ir í aðgerðunum og seg­ir Gia­varotti að minnsta kosti tvær hand­tök­ur til viðbót­ar vera í far­vatn­inu. 

Hvað varðar framsal Sverr­is til annarra landa sé það ekki leyfi­legt sam­kvæmt bras­il­ísk­um lög­um. 

„Hann get­ur ekki verið fram­seld­ur annað. Hann er gift­ur bras­il­ískri konu og þau eiga börn sem eru fædd hér. Lög­in okk­ar leyfa ekki framsal í slík­um til­fell­um,“ seg­ir Gia­varotti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert