3,1 milljarðs tap í rekstri Árborgar

Frá Selfossi.
Frá Selfossi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Sam­kvæmt sam­an­tekn­um rekstr­ar­reikn­ingi A- og B-hluta Árborg­ar var rúm­lega 3,1 millj­arðs króna tap á rekstri sveit­ar­fé­lags­ins árið 2022, en í fjár­hags­áætl­un var gert ráð fyr­ir rúm­lega tveggja millj­arða króna tapi.

Árs­reikn­ing­ur sveit­ar­fé­lags­ins var til umræðu á fundi bæj­ar­stjórn­ar í dag. Sunn­lenska.is greindi fyrst frá.

Fjár­magns­gjöld vega þar þyngst en þau urðu 991 millj­ón­um krón­um um­fram áætl­un, „sem rekja má til hærri verðbólgu en áætl­un gerði ráð fyr­ir,“ seg­ir í til­kynn­ingu á vef Árborg­ar.

Tekj­ur Árborg­ar á ár­inu 2022 námu tæp­lega 15,3 millj­örðum króna, launa­kostnaður var rúm­ir 9 millj­arðar króna og hækk­un líf­eyr­is­skuld­bind­inga nam rúm­um 95 millj­ón­um króna.

Ann­ar rekstr­ar­kostnaður voru rúm­ir 5,7 millj­arðar króna og nem­ur fram­legð af rekstri A- og B-hluta sam­tals 437 millj­ón­um króna. Af­skrift­ir voru 831 millj­ón­ir og var rekstr­arniðurstaða fyr­ir fjár­magnsliði nei­kvæð um 394 millj­ón­ir króna.

Fjár­muna­tekj­ur, fjár­magns­gjöld og tekju­skatt­ur námu um 2,8 millj­örðum króna og var rekstr­arniðurstaða árs­ins því nei­kvæð um 3,1 millj­arð líkt og áður sagði.

Þá seg­ir að skuldaviðmið hafi hækkað á ár­inu vegna fjár­fest­inga og auk­inn­ar verðbólgu. Viðmiðið er nú 158,4% miðað við 138,5% árið áður.

Lækki launa­kostnað um 4%

Á miðviku­dag var lögð fram aðgerðaáætl­un í bæj­ar­stjórn en áætl­un­in var unn­in með ráðgjöf­um KPMG. 

Meðal mark­miða áætl­un­ar­inn­ar eru að skuldaviðmiði sveit­ar­fé­lags­ins verði komið und­ir 150% fyr­ir árið 2028, að launa­kostnaður lækki úr um 60% af skatt­tekj­um árið 2022 í 56% af skatt­tekj­um fyr­ir árið 2025 og þá hef­ur sveit­ar­fé­lagið það mark­mið að selja bygg­ing­ar­lóðir og eign­ir fyr­ir 800 millj­ón­ir króna á ár­inu 2023. 

Þá hef­ur bæj­ar­stjórn einnig gert sam­komu­lag við innviðaráðherra um fjár­hags­leg­ar aðgerðir og eft­ir­lit sem gild­ir til apríl árið 2025.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert