Fordæma framkvæmd uppsagna í Árborg

Sveitarfélögin segja að bæjarfélagið segi þeim upp sem lægst hafa …
Sveitarfélögin segja að bæjarfélagið segi þeim upp sem lægst hafa launin en hlífi þeim sem hafa hæstu launin. mbl.is/Sigurður Bogi

Stétt­ar­fé­lög­in Foss og Bár­an for­dæma upp­sagn­ir hjá Árborg og fram­kvæmd þeirra. Þau lýsa áhyggj­um sín­um á því að upp­sagn­irn­ar bitni fyrst og fremst á kon­um, lág­tekju­hóp­um, þjón­ustuþegum og þjón­ustu al­mennt. Þau segja ímynd sveit­ar­fé­lags­ins hafa orðið fyr­ir álits­hnekki.

Stétt­ar­fé­lög­in segja í frétta­til­kynn­ingu, sem birt er á vefn­um DFS, að upp­sögn­um sé háttað á mis­mun­andi vegu. Sumt starfs­fólk hafi verið látið bíða í röð eft­ir að mæta í viðtals­her­bergi, en í öðrum til­fell­um hafi full­trú­ar mætt inn á vinnustaði og séð um fram­kvæmd upp­sagna, jafn­vel án þess að hafa hitt viðkom­andi starfs­mann áður.

Stétt­ar­fé­lög­in segja að ekki sjái til botns um hversu marg­ir muni missa vinn­una. Sveit­ar­fé­lög­in beri ákveðna skyldu gagn­vart íbú­um og sam­fé­lag­inu.

Segja þeim upp sem lægst hafa laun­in

„Þetta er kunn­ug­legt stef hjá Sveit­ar­fé­lag­inu Árborg því ekki er langt síðan að upp­sagn­ir á ræst­inga­fólki áttu að hagræða veru­lega í rekstri,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

„Því miður virðast göm­ul sann­indi vera að raun­ger­ast enn og aft­ur, með því að segja þeim upp sem lægst hafa laun­in þegar spara þarf fjár­muni, en hlífa þeim sem hæstu laun­in hafa.“

Þau harma að upp­sagn­irn­ar bitni fyrst og fremst á kon­um, lág­tekju­hóp­um og þjón­ustuþegum. Öryrkja­banda­lag Íslands hef­ur einnig lýst áhyggj­um yfir því að niður­skurður­inn bitni á fötluðum.

„Það má draga þá álykt­un að það sé gott að búa í Árborg á meðan þú þarft ekki á þjón­ustu sveit­ar­fé­lags­ins að halda,“ seg­ir að lok­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert