Landsréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem hafði áður gert íslenska ríkinu og flugvélaleigunni ALC að greiða Isavia 2,5 milljarða króna í skaðabætur.
Tengist málið deilum Isavia og ALC um kyrrsetningu á Airbus-þotu gegn skuldum flugfélagsins WOW air og niðurstöðu dómara við Héraðsdóm Reykjaness sem Isavia taldi að hafi komist að rangri niðurstöðu árið 2021 með saknæmum hætti.
Höfðaði Isavia því skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu og flugvélaleigunni ALC.
Niðurstaða héraðsdóms í því máli var að Isavia hafi orðið fyrir tjóni og að íslenska ríkið og ALC bæri á því ábyrgð. Var þeim gert að greiða Isavia 2,5 milljarða króna.
Íslenska ríkið og ALC áfrýjuðu dómnum til Landsréttar sem komst í dag að þveröfugri niðurstöðu en héraðsdómur.
Komust dómarar Landsréttar að því að Isavia hefði mátt koma í veg fyrir að flugvélinni væri flogið á brott á meðan lendingargjöld af henni væru ógreidd.
Hins vegar hafði Isavia ekki mátt nota flugvélina sem tryggingu fyrir gjöldum af öðrum flugvélum sem WOW Air hafði á leigu.