Þakkar landsmönnum fyrir þolinmæði og æðruleysi

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lands­menn hafa sýnt mikla þol­in­mæði og æðru­leysi síðustu daga vegna leiðtoga­fund­ar­ins og lok­ana og ég vil þakka fyr­ir það - það er ekki sjálf­gefið!“

Svo rit­ar Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra í Face­book-færslu í morg­un. 

Hún nefn­ir að er hún fór heim í gær­kvöldi að lokn­um vinnu­degi var miðbær­inn byrjaður að fær­ast í eðli­legt horf. 

Jafn­framt því að þakka lands­mönn­um þakk­ar Katrín þeim „sem hafa unnið sleitu­laust að und­ir­bún­ingi und­an­farn­ar vik­ur og mánuði. Það fólk er flest á bak við tjöld­in en það á mest­an heiður skil­inn fyr­ir alla sína þrot­lausu vinnu“.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert