Um 1,4 milljarðar í útgjöld lögreglu

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra Íslands, segir áætlaðan heildarkostnað við …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra Íslands, segir áætlaðan heildarkostnað við leiðtogafundinn um 2 milljarða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ut­an­rík­is­ráðherra Íslands, seg­ir áætlaðan heild­ar­kostnað rík­is­sjóðs og annarra op­in­berra aðila í tengsl­um við leiðtoga­fund Evr­ópuráðsins, sem fór fram í Hörpu 16. og 17. maí, vera um 2 millj­arða. End­an­leg­ur raun­kostnaður mun þó liggja fyr­ir á næstu vik­um. 

Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Bergþórs Ólason­ar, þing­manns Miðflokks­ins, seg­ir að ut­an­rík­isráðuneytið hafi leitt und­ir­bún­ings­vinnu að fund­in­um í sam­starfi við for­sæt­is­ráðuneyti, dóms­málaráðuneyti, embætti rík­is­lög­reglu­stjóra, Isa­via, önn­ur ráðuneyti og stofn­an­ir.

End­an­leg­ur raun­kostnaður ligg­ur ekki fyr­ir

Í kostnaðaráætl­un lög­reglu frá 9. mars var gert ráð fyr­ir að helstu út­gjaldaliðir næmu sam­tals um 1,391 millj­arð, en ráðuneytið gerði ráð fyr­ir um 472 millj­ón­um króna í út­gjöld.

Þá gerði Isa­via ráð fyr­ir að sam­an­lagður heild­ar­kostnaður á Reykja­vík­ur- og Kefla­vík­ur­flug­velli næmi um 25 millj­ón­um króna. 

Sam­kvæmt þeim töl­um ætti heild­ar­kostnaður að vera tæp­ir 1.9 millj­arðar. 

Sund­urliðun út­gjalda

Hér fyr­ir neðan má sjá sund­urliðun helstu út­gjalda í svari ráðuneyt­is­ins, en end­an­leg­ur raun­kostnaður ligg­ur ekki fyr­ir að svo stöddu. 

Í kostnaðaráætl­un lög­reglu frá 9. mars var gert ráð fyr­ir að helstu út­gjaldaliðir yrðu eft­ir­far­andi:
     a.      Und­ir­bún­ings- og skipu­lags­vinna að und­an­skild­um þjálf­un­ar­kostnaði: 240 millj. kr.
     b.      Þjálf­un­ar­kostnaður: 159 millj. kr.
     c.      Kaup og leiga á búnaði, þ.m.t. tækni- og hug­búnaður: 380 millj. kr.
     d.      Örygg­is­gæsla: 612 millj. kr.

Helstu kostnaðarliðir ráðuneyt­is­ins sam­kvæmt áætl­un voru eft­ir­tald­ir:

     a.      Kostnaður við um­gjörð fund­ar­ins: 165 millj. kr.
     b.      Laun og ann­ar kostnaður vegna þess starfs­fólks Stjórn­ar­ráðsins sem kom að und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd fund­ar­ins, þ.m.t. ör­ygg­is­vott­an­ir: Alls um 100 millj. kr.
     c.      Sam­göng­ur: 82 millj. kr.
     d.      Kostnaður við leigu og kaup á nauðsyn­leg­um búnaði, m.a. vegna túlkaþjón­ustu: Um 67 millj. kr.
     e.      Önnur aðkeypt þjón­usta, þ.m.t. út­send­ing­ar­kostnaður, lista­menn og prent­un: Um 58 millj. kr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert