Féllst á varðhald en stytti tímabilið

Frá Selfossi.
Frá Selfossi. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglustjórinn á Suðurlandi gerði í dag kröfu fyrir Héraðsdómi Suðurlands um áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir manni sem handtekinn 27. apríl vegna gruns um manndráp.

Krafan er lögð fram á grundvelli brýnna rannsóknarhagsmuna en endanleg niðurstaða krufningar liggur ekki fyrir, að því er segir í tilkynningu lögreglu.

Umfangsmikil rannsókn

Þar kemur fram að héraðsdómari hafi kveðið upp úrskurð sinn klukkan 15 í dag og fallist á kröfu embættisins. Aftur á móti stytti hann þó varðhaldið í tvær vikur í stað fjögurra.

„Rannsókn málsins hefur verið mjög umfangsmikil, bæði hvað varðar gagnaöflun og eins úrvinnslu gagna. Að henni lokinni verður það sent héraðssaksóknara til meðferðar,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert