Réttarhöldum í Samherjamálinu í Namibíu frestað

Réttarhöldum í Fishrot-málinu svokallaða hefur verið frestað.
Réttarhöldum í Fishrot-málinu svokallaða hefur verið frestað. mbl.is/Sigurður Bogi

Dóm­ari í namib­íska ang­an­um af Sam­herja­mál­inu, hef­ur frestað rétt­ar­höld­um yfir tíu  sak­born­ing­um. RÚV greindi fyrst frá. 

Rétt­ar­höld­in áttu að hefjast 2. októ­ber, en hef­ur nú verið frestað til 29. janú­ar 2024 vegna „ótelj­andi ástæðna, bæði heilsu­far­stengd­um og fjár­hags­leg­um.“ Sak­born­ing­arn­ir munu engu að síður mæta til fyr­ir­töku á mál­inu þann 10. októ­ber sam­kvæmt namib­íska miðlin­um In­form­anté.

Tíu sak­born­ing­ar eru bendlaðir við stærsta spill­ing­ar­mál Namib­íu sem fel­ur í sér millj­ón­ir op­in­berra sjóða, en málið hef­ur verið nefnt Fis­hrot-málið af namib­ísk­um fjöl­miðlum.

Sóttu um aðgang að fryst­um eign­um 

Einn þeirra ákærðu, Ricar­do Gusta­vo, vék sér und­an rétt­ar­höld­um að svo stöddu vegna aðgerðar sem hann mun gang­ast und­ir inn­an skamms og sagði lög­fræðing­ur hans óljóst hvenær Gusta­vo yrði nógu hraust­ur til að sitja rétt­ar­höld. 

Aðrir sak­born­ing­ar hafa hafa sótt um fjár­hagsaðstoð og aðrir sótt um aðgang að fryst­um eign­um til að greiða fyr­ir lög­fræðikostnað.

Sótti um aðstoð rík­is­sak­sókn­ara

Meðal hinna ákærðu eru Sacky Shang­hala fyrr­ver­andi dóms­málaráðherra Namib­íu og Bern­ard Esau fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráðherra Namib­íu.

Sá síðar­nefndi sendi beiðni til rík­is­sak­sókn­ara um að yf­ir­völd myndu standa straum af lög­fræðikostnaði hans, en þeirri beiðni var hafnað. Voru rök fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráðherr­ans að hann hefði sinnt op­in­ber­um skyld­um þegar hann var bendlaður við málið.  

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert