Fastir liðir eins og venjulega í 20 ár

Það var þétt setinn bekkurinn á Drekktu betur-keppni númer 999 …
Það var þétt setinn bekkurinn á Drekktu betur-keppni númer 999 á Ölstofunni síðasta föstudag. Margir gestir hafa komið frá upphafi og fyrir miðri mynd má greina einn þeirra, Ævar Örn Jósepsson fréttamann. mbl.is/Kristinn Magnússon

Spurt er um ár. Þetta er árið sem Íslend­inga­bók var opnuð al­menn­ingi og kvik­mynd­in Nói al­binói var frum­sýnd. Há­hyrn­ing­ur­inn Keikó drapst og Íraks­stríðið hófst, Cristiano Ronaldo gekk til liðs við Manchester United og Þórólf­ur Árna­son varð borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Rúrik Har­alds­son leik­ari lést, Ólaf­ur Ragn­ar Gríms­son for­seti Íslands kvænt­ist Dor­rit Moussai­eff og spurn­inga­keppn­in Drekktu bet­ur hóf göngu sína á hinum sál­uga pöbb Grandrokk við Smiðju­stíg.

Um­rætt ár er 2003 og því eru nú liðin 20 ár síðan fasta­gest­ir á Grandrokk komu á fót hinu vin­sæla pöbbk­vissi sem hef­ur verið haldið úti all­ar göt­ur síðan. Í dag, föstu­dag, klukk­an 18 fer keppni núm­er 1.000 af Drekktu bet­ur fram á Ölstofu Kor­máks og Skjald­ar.

Jón Svanur Jóhannsson er einn skipuleggjenda Drekktu betur.
Jón Svan­ur Jó­hanns­son er einn skipu­leggj­enda Drekktu bet­ur. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

„Þessi keppni er ómiss­andi hluti af lífi margra. Það er ákveðinn kjarni sem mæt­ir alltaf og þar á meðal eru ein­stak­ling­ar sem hafa komið frá byrj­un. Marg­ir hafa því mætt á mörg hundruð keppn­ir,“ seg­ir Jón Svan­ur Jó­hanns­son, einn um­sjón­ar­manna Drekktu bet­ur. 

Þjóðþekkt fólk við stjórn­völ­inn

Fyrsta Drekktu bet­ur-keppn­in fór fram á Grandrokk við Smiðju­stíg föstu­dag­inn 25. apríl 2003. Þá hafði knæp­an skömmu fyrr verið flutt um set en hún var áður við Klapp­ar­stíg, í hús­næði sem Sirk­us tók þá við og gerði frægt um víðan völl. Líf­legt menn­ing­ar­líf var í kring­um Grandrokk á þess­um árum, þar var teflt og pílukast naut vin­sælda. Staður­inn var vin­sæll til tón­leika­halds og leik­fé­lag var starf­rækt. Svo bætt­ist spurn­inga­keppn­in við. Það var Freyr Eyj­ólfs­son, þáver­andi tón­list­ar- og fjöl­miðlamaður og nú­ver­andi framámaður í end­ur­vinnslu­mál­um, sem kom keppn­inni á kopp­inn og var spyr­ill í upp­hafi. Sig­ur­veg­ar­ar fyrstu keppn­inn­ar voru Örn­ólf­ur Árna­son og Har­ald­ur Blön­dal. Davíð Þór Jóns­son prest­ur stýrði keppni núm­er tvö. Því þótti skipu­leggj­end­um viðeig­andi að fá þá Frey og Davíð Þór til að snúa aft­ur á víg­völl­inn í til­efni tíma­mót­anna og verða þeir spyrl­ar á morg­un.

Marg­ir þjóðþekkt­ir ein­stak­ling­ar hafa tekið að sér spyrla­hlut­verkið í gegn­um árin, til að mynda Ómar Ragn­ars­son, Páll Óskar Hjálm­týs­son, Vera Ill­uga­dótt­ir, Ævar Örn Jóseps­son sem reynd­ar telst í hópi þaul­sætn­ustu manna á Drekktu bet­ur, Vil­helm Ant­on Jóns­son, Stefán Páls­son og Þóra Arn­órs­dótt­ir. Drekktu bet­ur hef­ur verið hald­in á nokkr­um stöðum á þess­um tveim­ur ára­tug­um en hef­ur síðustu níu árin átt sér fast­an stað á Ölstof­unni. Nema auðvitað á tím­um kór­ónu­veirunn­ar en þá var hún færð á netið eins og al­gengt var með viðburði og fé­lags­líf fólks. Þá fékk keppn­in nýtt nafn, Kóf­drekktu bet­ur, og voru 49 slík­ar keppn­ir haldn­ar. Þær telj­ast vita­skuld ekki með í op­in­berri taln­ingu yfir Drekktu bet­ur-keppn­ir en þar er fast haldið í hefðir.

Steinþór Steingrímsson og Ölvir Gíslason voru spyrlar á Drekktu betur …
Steinþór Stein­gríms­son og Ölvir Gísla­son voru spyrl­ar á Drekktu bet­ur nr. 999. Þeir hafa ósjald­an stýrt skút­unni eða verið með sjálf­ir. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Óneit­an­lega nör­da­sam­koma

„Fólk hef­ur mjög sterk­ar skoðanir á keppn­inni og það má helst ekk­ert breyt­ast,“ seg­ir Jón Svan­ur. Hann er spurður að því hvað Drekktu bet­ur sé. „Fyr­ir það fyrsta er þetta fast­ur fé­lags­skap­ur fólks sem hef­ur að mörgu leyti svipuð áhuga­mál. Það hitt­ist og fær sér kannski bjór en það er auðvitað ekki nauðsyn­legt. Þetta er nör­da­sam­koma, ætli það verði ekki að segj­ast, en í já­kvæðustu merk­ingu þess orðs,“ seg­ir hann og bros­ir.

All­ir eru vel­komn­ir á Drekktu bet­ur og það kost­ar ekk­ert að vera með. „Þetta er bara gert til skemmt­un­ar. Auðvitað hleyp­ur í mann keppn­is­skap þegar maður er byrjaður en sig­ur er ekk­ert lyk­il­atriði. Þetta er ein­fald­lega fast­ur punkt­ur í til­ver­unni á góðum tíma og á góðum stað. Ölstof­an er skemmti­leg­ur staður til að setj­ast niður og spjalla við fólk. Þarna hef­ur mynd­ast góð vinátta og við höf­um meira að segja fært út kví­arn­ar. Þannig hef­ur árs­hátíð Drekktu bet­ur verið hald­in nokkr­um sinn­um.“

Býst við fullu húsi í kvöld

Jón Svan­ur seg­ir að spenn­an fyr­ir keppni núm­er 1.000 hafi smám sam­an verið að byggj­ast upp. Síðustu mánuði hafi að meðaltali um 30 lið mætt til leiks en allra síðustu vik­ur hafi þau verið í kring­um 40 tals­ins. Bekk­ur­inn er þétt set­inn á Ölstof­unni þegar þangað mæta 80 manns og hann á allt eins von á að fleiri en það láti sjá sig í kvöld. „Við von­um að sem flest­ir kom­ist inn en ein­hverj­ir þurfa sjálfsagt að standa. Meðan spyrl­arn­ir kom­ast inn þá leys­um við hin vanda­mál­in.“

Ítar­legri um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu fimmtu­dag­inn 12. októ­ber.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert