Áhugasamur um áfengislausan bjór

Sveinn Waage á Sæta svíninu .
Sveinn Waage á Sæta svíninu .

Sveinn Waage hef­ur kynnt bjór og bjór- og matarpör­un frá 2009 og seg­ir að áhug­inn á kynn­ingu og nám­skeiðum sé mik­ill. „Við vor­um með tvö nám­skeið á Sæta svín­inu í haust og stefn­an er að halda áfram eft­ir þorr­ann á næsta ári,“ seg­ir hann. „Fólk hef­ur áhuga á bjór og bjór­menn­ing­in er allt önn­ur en hún var.“

Ölgerðin bauð upp á Bjór­skól­ann í ára­tug frá 2009 og var Sveinn, sem var vörumerkja­stjóri hjá fyr­ir­tæk­inu, einn kenn­ar­anna, en auk hans kenndu Hösk­uld­ur Sæ­munds­son og Stefán Páls­son lengst við skól­ann. Sveinn byrjaði með nám­skeið um bjór- og matarpör­un á veit­ingastaðnum Sæta svín­inu í Reykja­vík fyr­ir um fimm árum og hann og Stefán hafa auk þess tekið vel ósk­um um að heim­sækja fyr­ir­tæki og stofn­an­ir og kynna leynd­ar­dóma bjórs­ins. „Við höf­um verið með jóla­bjóra­hug­vekju og jóla­bjórasmakk í mörg ár.“

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í gær. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert