Ekki vitað um aðra ISIS-liða

Lögreglan að störfum.
Lögreglan að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lög­regla býr ekki yfir nein­um staðfest­um upp­lýs­ing­um um að fleiri ISIS-liðar séu hér á landi en sá eini sem vitað var um að væri meðlim­ur í hryðju­verka­sam­tök­un­um og var flutt­ur af landi brott þann 12. janú­ar sl. ásamt eig­in­konu sinni og sex börn­um. Svo seg­ir í svari rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Morg­un­blaðsins.

Viðkom­andi dvaldi í hús­næði á Ak­ur­eyri á veg­um Vinnu­mála­stofn­un­ar þar í bæ, en hafði verið synjað um alþjóðlega vernd hér á landi þar sem hann hafði fengið slíka vernd í Grikklandi og var hon­um því vísað úr landi og hann því flutt­ur þangað ásamt fjöl­skyldu sinni.

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert