Fugladauði um allt land í skoðun

Auðnutittlingur.
Auðnutittlingur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Mat­væla­stofn­un rann­sak­ar nú fjölda ábend­inga sem borist hafa um dauða auðnu­titt­linga und­an­farið. Þóra J. Jón­as­dótt­ir sér­greina­dýra­lækn­ir staðfest­ir að óeðli­lega mik­ill fjöldi ábend­inga hafi borist hvaðanæva af land­inu. Hún kveðst ekki hafa töl­ur um fjölda dauðra fugla.

Við telj­um ekki mjög lík­legt að hér sé um fuglaflensu að ræða en mun­um auðvitað taka sýni til að skera úr hvort svo sé, seg­ir Þóra. Á næst­unni verði fugl­ar send­ir í sýna­tök­ur og krufn­ingu til að kom­ast nær mögu­leg­um ástæðum þessa dauða, seg­ir hún enn­frem­ur. Þá þurfi að kanna hvort sömu ástæður liggi að baki í öll­um til­vik­um.

Marg­ir leggja það í vana sinn að fóðra smá­fugla á vet­urna og seg­ir Þóra að það sé mögu­legt að fugla­dauðinn kunni að tengj­ast allskon­ar smit­um sem geta komið upp við fóður­stöðvar. Hún hvet­ur því til að fólk gæti fyllsta hrein­læt­is og dreifi mat­ar­gjöf­um sem mest á nýja staði.

Þóra seg­ir að sam­kvæmt upp­lýs­ing­um dýra­fræðinga HÍ hafi slík til­vik komið upp hér á landi áður á síðustu árum en það hafi ekki verið kannað sér­stak­lega þá.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert