Mygla í Hagaborg

Leikskólinn Hagaborg.
Leikskólinn Hagaborg. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mygla greind­ist und­ir gólf­dúk í leik­skól­an­um Haga­borg við Forn­haga í Reykja­vík á dög­un­um. Svo virðist sem mygl­an sé staðbund­in, til þess benda mæl­ing­ar á ryk­sýn­um.

Brugðist var við með mót­vægisaðgerðum, allt var þrifið í hólf og gólf og loft­hreinsi­tækj­um komið fyr­ir til að bæta inni­vist.

Vinna er haf­in við und­ir­bún­ing fram­kvæmda í leik­skól­an­um, sem skv. upp­lýs­ing­um frá skrif­stofu skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur þykir orðið tíma­bært en skól­inn hef­ur verið starf­rækt­ur í nú­ver­andi hús­næði í 63 ár. Farið verður í end­ur­nýj­un og end­ur­bæt­ur á hús­næðinu en áður þarf að hanna, afla leyfa, und­ir­búa útboð og fleira. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert