Kona er sögð vera í haldi lögreglu í tengslum við rannsókn á andláti sex ára barns sem fannst látið í heimahúsi á Nýbýlavegi í morgun. Ríkisútvarpið kveðst hafa heimildir fyrir því að konan muni gangast undir geðmat í dag.
Eiríkur Valberg, lögreglufulltrúi hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segist í samtali við mbl.is ekki geta staðfest að kona sé í haldi í tengslum við rannsóknina.
Lögregla verst allra fregna af málinu og segir Eiríkur málið á viðkvæmu stigi. Því verði frekari upplýsingar ekki veittar að svo stöddu.