Myndskeið: 60-70 manns við slökkvistarf

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    „Þetta lít­ur miklu bet­ur út en fyr­ir tveim­ur tím­um,“ seg­ir Eyþór Leifs­son slökkviliðsvarðstjóri sem stýr­ir aðgerðum á vett­vangi brun­ans í Fells­múla. Kveður hann slökkvilið hafa ráðið niður­lög­um elds­ins að mestu leyti en þó nokk­ur vinna sé þó eft­ir við að slökkva í glæðum og sinna öðrum ör­ygg­is­ráðstöf­un­um.

    Eng­in slys hafa orðið á fólki í brun­an­um enda ströngustu ör­ygg­is­regl­um fylgt að sögn Eyþórs sem aðspurður seg­ist ekk­ert geta sagt um elds­upp­tök að svo búnu. „Við feng­um bara til­kynn­ingu skömmu fyr­ir klukk­an sex og vit­um ekk­ert,“ seg­ir hann.

    Þver­vegg­ur tor­veldaði slökkvistarf

    „Við byrjuðum að sækja [að eld­in­um] úr báðum átt­um, bæði neðan að og ofan frá. Svo kem­ur það í ljós að það er þver­vegg­ur í miðju bil­inu sem gerði slökkvi­starfið erfiðara hérna meg­in frá,“ seg­ir Eyþór sem er stadd­ur sunn­an við at­vinnu­hús­næðið sem brann.

    Seg­ir hann um 60 til 70 manna lið hafa bar­ist við eld­inn og áfram verði unnið á vett­vangi þar til all­ar glæður hafi verið slökkt­ar og hreinsað til eft­ir slökkvi­starfið.

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert