Leiðtogafundurinn kostaði skildinginn

Kostnaðartölur vegna Leiðtogafundar Evrópuráðsins var kynntur.
Kostnaðartölur vegna Leiðtogafundar Evrópuráðsins var kynntur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Heild­ar­kostnaður við leiðtoga­fund Evr­ópuráðsins sem hald­inn var hér á landi í maí á síðasta ári nam rúm­um tveim­ur millj­örðum króna.

Þá komu rúm­lega 1.200 starfs­menn að fund­in­um. Þar af sinntu 696 inn­lend­ir og 96 er­lend­ir lög­reglu­menn ör­ygg­is­gæslu.

Þetta kem­ur fram í svari við fyr­ir­spurn Ingu Sæ­land, for­manns Flokks fólks­ins, til Bjarna Bene­dikts­son­ar ut­an­rík­is­ráðherra.

Leiðtoga­fund­inn sóttu full­trú­ar allra 46 aðild­ar­ríkja Evr­ópuráðsins, þar af 37 þjóðarleiðtog­ar og for­sæt­is­ráðherr­ar, auk hátt­settra full­trúa alþjóðastofn­ana og fimm áheyrn­ar­ríkja ráðsins. Sam­tals komu 65 er­lend­ar sendi­nefnd­ir og hátt í eitt þúsund gest­ir til lands­ins til að taka þátt í fund­in­um auk meira en 200 er­lendra blaða- og fjöl­miðlamanna.

Síðbú­inn ákvörðun leiddi til kostnaðar­auka

Fram kem­ur í svari ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins að síðbúin ákvörðun Evr­ópuráðsins um að halda leiðtoga­fund­inn á Íslandi hafi leitt til kostnaðar­auka ef miðað er við áætlan­ir. Þannig var í fjár­lög­um 2023 gert ráð fyr­ir að hald­inn yrði um­fangs­minni ut­an­rík­is­ráðherra­fund­ur í lok for­mennsku Íslands. Í sam­eig­in­legu minn­is­blaði for­sæt­is-, dóms­mála- og ut­an­rík­is­ráðuneyta, sem lagt var fyr­ir rík­is­stjórn 31. mars 2023, nam áætlaður heild­ar­kostnaður Íslands við leiðtoga­fund­inn 1.324 millj. kr eða tæp­lega 700 millj­ón­um króna minna en raun­in varð. 

123 millj­ón­ir í þjálf­un lög­reglu­manna

Þá seg­ir að í viðleitni sinni til að upp­fylla ör­yggis­kröf­ur og staðla hafi lög­regl­an sent lög­reglu­menn í sér­staka þjálf­un til að tryggja ör­yggi á fundi af slíkri stærðargráðu. Hvert lög­reglu­embætti á land­inu sendi lög­reglu­menn í þessa þjálf­un. 

„Hver og ein sendi­nefnd sem sótti fund­inn naut sér­stakr­ar ör­ygg­is­gæslu lög­reglu á ferðum og gististöðum,“ seg­ir í svar­inu. 

Leiðtogafundi Evrópuráðsins var haldinn í maí á síðasta ári.
Leiðtoga­fundi Evr­ópuráðsins var hald­inn í maí á síðasta ári. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Kostnaður­inn við þessa þjálf­un var 123 millj­ón­ir króna. Þá kem­ur fram að kaup og leiga á búnaði hafi kostað 369 millj­ón­ir króna. 

Eng­ir bíl­ar keypt­ir 

Eins kem­ur fram í svar­inu að eng­ir bíl­ar hafi verið keypt fyr­ir fund­inn. All­ir voru þeir leigðir af bíla­leigu og bílaum­boðum. Að auki voru 10 bíl­ar frá Stjórn­ar­ráðinu lánaðir til verk­efn­is­ins. 

mbl.is sagði hins veg­ar frá því að um 50 Audi Q8 e-tron bíl­ar hafi verið flutt­ir til lands­ins sér­stak­lega vegna fund­ar­ins. Hekla sá um inn­flutn­ing­inn en Friðbert Friðberts­son, for­stjóri Heklu, sagði frá því síðastliðið sum­ar að tals­vert væri um að fólk vildi kaupa bíla frá fund­in­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert