Beint: Skaðlegt inniloft, loftræsing og heilsa

Skaðlegt inniloft, loftræsing og heilsa verður aðalfundarefni málþingis sem fer …
Skaðlegt inniloft, loftræsing og heilsa verður aðalfundarefni málþingis sem fer fram í Háskólanum í Reykjavík. Ljósmynd/Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Ráðstefna um skaðlegt inni­loft, loftræs­ingu og heilsu fer fram í Há­skól­an­um í Reykja­vík í dag. Viðburður­inn er hluti af fundaröðinni Raka­skemmd­ir og mygla, en dag­skrá hefst klukk­an 13. 

Hægt er að fylgj­ast með fund­in­um í beinni út­send­ingu hér fyr­ir neðan. 

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra, opn­ar ráðstefn­una og í lok henn­ar mun Kristján Kristjáns­son fréttamaður stýra pall­borðsum­ræðum. Ólaf­ur Wal­levik, pró­fess­or við iðn- og tækni­fræðideild HR, er fund­ar­stjóri.

Dag­skrá er eft­ir­far­andi:

13:00 Setn­ing. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, há­skóla- iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra.
13:10 Mark­mið ráðstefn­unn­ar. Ólaf­ur Wal­levik fund­ar­stjóri.
13:20 Inni­loft, efn­is­val, raka­skemmd­ir og heilsa. Sylgja Dögg Sig­ur­jóns­dótt­ir.
13:40 Hús­næði og heilsa - Sýn lækn­is. Dr. Krist­ín Sig­urðardótt­ir.
14:00 What we know and should know about ventilati­on. Dr. Pawel Wargocki, pró­fess­or DTU.
14:30 Kaffi og kleina
14:50 Loftræs­ing, loft­skipti og sjálf­bærni. Alma Dag­björt Ívars­dótt­ir.
15:05 Vél­ræn eða nátt­úru­leg loftræs­ing. Ei­rík­ur Ástvald Magnús­son.
15:20 Þarf bygg­ing­a­rann­sókn­ir? Svana Helen Björns­dótt­ir, formaður VFÍ.
15:35 Pall­borð: Þarf rann­sókn­ir?

  • Dr. Ari Trausti Guðmunds­son jarðfræðing­ur
  • Her­mann Jóns­son, for­stjóri HMS
  • Dr. Sig­ur­veig Þ. Sig­urðardótt­ir yf­ir­lækn­ir
  • Sylgja Dögg Sig­ur­jóns­dótt­ir, líf­fræðing­ur og lýðheilsu­fræðing­ur
  • Dr. Ólaf­ur H. Wal­levik, pró­fess­or við HR
  • Hildigunn­ur Sverr­is­dótt­ir, arki­tekt, fyrr­um deild­ar­for­seti hjá LHÍ
  • Kristján Kristjáns­son, fréttamaður stýr­ir pall­borðsum­ræðum
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert