Einn heppinn Norðmaður var með 1. vinning í Víkinga lottói kvöldsins og fær fyrir það í sinn hlut rétt tæpar 630 milljónir króna.
Þá var einn heppinn Íslendingur með hinn al-íslenska bónusvinning og fær fyrir það rúmar 1,6 milljónir króna.
Lukkumiðinn var keyptur í Gullnesti í Grafarvogi.
Hvorki 1. né 2. vinningur gekk út í Jóker útdrætti kvöldsins.