Heppinn miðaeigandi hreppti 500 þúsund króna vinning þegar dregið var í Happdrætti Háskólans í kvöld. Þar sem hann á trompmiða fimmfaldaði hann vinninginn og fær því 2,5 milljónir króna í sinn hlut.
Þá fengu sjö miðaeigendur eina milljón króna hver og ellefu miðaeigendur fengu 500 þúsund krónur hver.
Fjölmargir aðrir vinningshafar höfðu ærna ástæðu til að gleðjast enda skipta þeir á milli sín tæpum 135 skattfrjálsum milljónum.
Fjórfaldur pottur í Milljónaveltunni gekk ekki út og verður potturinn því fimmfaldur í næsta útdrætti eða 50 milljónir króna.