Aftur grunur um salmonellusmit

Dreifing á afurðum hefur verið stöðvuð og í samræmi við …
Dreifing á afurðum hefur verið stöðvuð og í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins er unnið að innköllun vörunar, segir í tilkynningu. Ljósmynd/Colourbox

Komið hef­ur upp grun­ur um salmo­nellu­smit í fersk­um kjúk­lingi fram­leidd­um af Mat­fugli ehf.

Frek­ari rann­sókna er þörf til þess að staðfesta grun­inn en þangað til þykir fyr­ir­tæk­inu rétt að innkalla vör­una, að því er seg­ir í til­kynn­ingu frá Mat­fugli. 

Um er að ræða kjúk­ling með rekj­an­leika­núm­er­inu 011-24-10-3-64. Þetta er annað núm­er en kom fram í ann­arri til­kynn­ingu um meint salmonu­ellu­smit, sem var birt 8. apríl. 

  • Vöru­heiti: Ali, Bón­us, FK
  • Fram­leiðandi: Mat­fugl ehf, Völu­teigi 2, 270 Mos­fells­bæ
  • Lot­u­núm­er:     011-24-10-3-64 (heill kjúk­ling­ur, bring­ur, lund­ir, læra­kjöt, bit­ar, kryddlegn­ar bring­ur), pökk­un­ar­dag­ur 09.04.2024 - 11.04.2024
  • Dreif­ing:         Bónusversl­an­ir, Krónu­versl­an­ir, Fjarðar­kaup, Hag­kaup 

Dreif­ing á afurðum hef­ur verið stöðvuð og í sam­ræmi við innra eft­ir­lit fyr­ir­tæk­is­ins er unnið að inn­köll­un vör­un­ar, seg­ir í til­kynn­ingu. 

„Neyt­end­ur sem keypt hafa kjúk­ling með þessu rekj­an­leika­núm­eri eru beðnir um að skila hon­um í viðkom­andi versl­un eða beint til Mat­fugls ehf., Völu­teigi 2, Mos­fells­bæ.

Til að var­ast óró­leika hjá neyt­end­um skal það tekið fram að þessi kjúk­ling­ur er hættu­laus fari neyt­end­ur eft­ir áprentuðum leiðbein­ing­um um eld­un kjúk­linga, sem finna má á umbúðum, steiki kjúk­ling­inn í gegn og passi að blóðvökvi fari ekki í aðra mat­vöru.

ATH inn­köll­un­in á ein­göngu við um kjúk­ling með þess­um til­teknu rekj­an­leika­núm­er­um.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert