Fiskistofa lokar starfsstöð eftir að mygla fannst

Fiskistofa hefur tímabundið lokað starfstöð sinni í Borgum á Akureyri …
Fiskistofa hefur tímabundið lokað starfstöð sinni í Borgum á Akureyri vegna myglu. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Fiski­stofa hef­ur tíma­bundið lokað starfs­stöð sinni í Borg­um á Ak­ur­eyri eft­ir að mygla fannst í hús­næðinu. 

Þetta staðfest­ir Jón Kol­beinn Guðjóns­son, fram­kvæmda­stjóri eignaum­sýslu­sviðs Reita, í sam­tali við mbl.is. Um er að ræða hús­næði í eigu Reita sem er að hluta í út­leigu til Fiski­stofu.

Aðspurður seg­ir Jón að óværa, eða mygla, hafi fund­ist við fram­kvæmd­ir í þess­um hluta hús­næðis­ins og að unnið sé að því að leysa málið í sam­starfi við Fiski­stofu. Enn eigi eft­ir að meta um­fang mygl­unn­ar. 

Beðið eft­ir niður­stöðum í öðrum hluta hús­næðis­ins

Á heimasíðu Fiski­stofu seg­ir að lokað sé vegna óviðráðan­legra or­saka. Halla María Svein­björns­dótt­ir, mannauðs- og þjón­ust­u­stjóri Fiski­stofu, vísaði á Reiti þegar upp­lýs­inga var leitað. 

Há­skól­inn á Ak­ur­eyri er meðal þeirra fyr­ir­tækja og stofn­ana sem er með hluta hús­næðis­ins á leigu.

Eyj­ólf­ur Guðmunds­son rektor seg­ir í sam­tali við mbl.is að upp hafi komið vanda­mál í þeim hluta hús­næðis­ins sem Fiski­stofa leig­ir. Eng­in vanda­mál hafi þó verið staðfest í þeim hluta hús­næðis­ins sem há­skól­inn leig­ir. 

„Þetta er allt sam­an í rann­sókn eins og er, þannig að við bara bíðum eft­ir niður­stöðu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert