Hermann Nökkvi Gunnarsson
Baldur Þórhallsson segir ekki rétt að hann hafi barist fyrir samþykkt Icesave-samninganna heldur hafi hann sem fræðimaður rýnt í þá áhættu sem fólst í því að hafna þeim.
Þetta kom fram á forsetafundi Morgunblaðsins og mbl.is með Baldri á Hótel Selfossi í gærkvöldi.
Nokkur tími fór í að ræða Icesave, en Baldur var sérstaklega inntur eftir svörum um það hvernig hann myndi ekki eftir því hvað hann kaus í þjóðaratkvæðagreiðslum um Icesave, eins og hann upplýsti um í Spursmálum undir lok síðasta mánaðar.
„Ég er einfaldlega of heiðarlegur í þessari kosningabaráttu til þess að segja ósatt þótt það hagnist mér pólitískt,“ sagði Baldur meðal annars og bætti við seinna:
„Ég var mjög óviss um þetta – hvort ég ætti að greiða með eða skila auðu – fram á síðasta dag.“
Hann kveðst hafa verið ósáttur við það hvernig staðið var að fyrri samningnum.
„Ég var mjög ósáttur við það hvernig staðið var að þeim samningaviðræðum. Til dæmis að við skyldum ekki fá strax erlenda sérfræðinga til þess að eiga í þessum erfiðu samningaviðræðum við erlenda aðila sem þekktu til málsins. Ég hafði í rauninni allt á hornum mér gagnvart því. Svo er samningurinn númer tvö, fannst mér miklu skárri en númer eitt,“ sagði Baldur.
Hann útskýrði að sem fræðimaður sem hefði veitt álit á samningunum á sínum tíma hefðu hans persónulegu skoðanir verið aukaatriði.
Þá gagnrýndi hann það að ráðherrar hafi í raun stigið til hliðar og tekið lítið þátt í umræðunum.
Horfðu á þáttinn í heild sinni hér: