Hermann Nökkvi Gunnarsson
Á forsetafundi Morgunblaðsins og mbl.is á Akureyri var Katrín Jakobsdóttir spurð af fundargesti hvort hún hefði svikið vinstrimenn í landinu.
„Ef ég teldi að ég hefði svikið þjóðina þá væri ég ekki að gefa kost á mér í þetta embætti. Ég held að fólk hafi kynnst mér ágætlega sem stjórnmálamanni og viti ósköp vel að í stjórnmálum myndi ég alltaf gera það sem í raun og veru er gagnrýnt mest, það er að segja að leita lausna, leita málamiðlana, því að þannig virka lýðræðissamfélög,“ sagði Katrín.
Hún sagði að sem forsætisráðherra hefði hún ætíð haft hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi þrátt fyrir að hafa þurft að gera málamiðlanir.
Stefán Einar Stefánsson bað hana um að svara því nánar hvort hún hefði svikið vinstrimenn og þá sagði hún að vinstrimenn væru líka hluti af þjóðinni.
„Ég átta mig alveg á fyrir hvað ég er gagnrýnd og hafa gert of miklar málamiðlanir, ekki náð nægjanlegum árangri. En það einfaldlega fylgir því að leiða fjölflokka ríkisstjórn ólíkra flokka, að enginn fær allt sitt.
Eru það svik? Ég vil meina ekki. Einhver kann að kalla það það. En ég segi að þarna voru einfaldlega heildarhagsmunir og þjóðarhagur að leiðarljósi,“ sagði Katrín.
Horfðu á þáttinn í heild sinni: