Einum sleppt en þrír áfram í haldi

Brotin áttu sér stað í Reykholti í Biskupstungum. Mynd úr …
Brotin áttu sér stað í Reykholti í Biskupstungum. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi

Ein­um aðila var sleppt úr varðhaldi síðdeg­is í gær í tengsl­um við al­var­legt of­beld­is­brot sem átti sér stað í heima­húsi í Reyk­holti und­ir lok síðasta mánaðar.

Jón Gunn­ar Þór­halls­son, yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­regl­unni á Suður­landi, staðfesti þetta í sam­tali við mbl.is en þrír sitja enn í gæslu­v­arðhaldi vegna máls­ins og renn­ur gæslu­v­arðhaldið út föstu­dag­inn. Jón Gunn­ar seg­ir að ekki hafi verið tek­in ákvörðun um fram­haldið.

Um er að ræða brot er varða meinta frels­is­svipt­ingu, lík­ams­árás og fjár­kúg­un í heima­húsi í Reyk­holti. Ein­stak­ling­ur­inn sem varð fyr­ir of­beld­inu er með malt­neskt rík­is­fang sem búið hef­ur hér á landi í nokk­ur ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert