Agnar Már Másson
„Ég veit ekki hvernig þetta fer með virði ríkisbankanna að hafa gert þetta svona illa.“
Þetta segir Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, í samtali við mbl.is um nýlegt álit EFTA-dómstólsins sem birt var í gær.
Í álitinu kemur fram að skilmálar fyrir lán með breyttum vöxtum þurfi að vera skýrir og að orðalag skilmála í íslenskum bönkum sé ógagnsætt.
Álitið varðar m.a. 1.500 manna málsókn Neytendasamtakanna gegn Landsbankanum og Íslandsbanka.
Dómstólinn setur þó þann fyrirvara á að það sé íslenskra dómstóla að meta hvort niðurstaða EFTA samræmist íslenskum lögum. Málið er tekið fyrir í Héraðsdómi, sem liggur nú yfir einstökum lánaskilmálum til að meta hvort þeir séu nægilega skýrir.
„Ég held að það sé líklegra en ekki að þeir verði fundnir óskýrir,“ segir Björn Leví um skilmálana.
Björn Leví býst við því að upp komi fleiri mál í tengslum við lánaskilmála, sérstaklega ef íslenskir dómstólar komast að þeirri niðurstöðu að skilmálarnir hafi verið óskýrir. „Stærðin á því er mögulega eitthvað stjarnfræðilegt,“ bætir hann við.
Samkvæmt ársreikningum áætla bankarnir áætla að undirliggjandi hagsmunir í dómsmálunum nema um 30 milljörðum króna, eins og lögmaður lántaka benti á í viðtali við mbl.is.
„Ofan í þetta er Íslandsbanki hluti af þessu mengi. Nógu mikið hefur hann minnkað í virði eftir söluklúðrið síðast og rannsóknina sem er í gangi,“ bendir píratinn á að síðustu.