Einn laus úr haldi en annar bæst við

Brotin áttu sér stað í Reykholti í Biskupstungum.
Brotin áttu sér stað í Reykholti í Biskupstungum. mbl.is/Sigurður Bogi

Einn ein­stak­ling­ur til viðbót­ar hef­ur verið úr­sk­urðaður í gæslu­v­arðhald vegna al­var­legs of­beld­is­brots sem átti sér stað í heima­húsi í Reyk­holti í Bisk­upstung­um und­ir lok síðasta mánaðar.

Sá sem um ræðir er karl­maður.

Öðrum ein­stak­lingi hef­ur aft­ur á móti verið sleppt, að sögn Jóns Gunn­ars Þór­halls­son­ar, yf­ir­lög­regluþjóns hjá lög­regl­unni á Suður­landi.

Tveir karl­menn og ein kona í haldi

Sam­tals eru þrír Íslend­ing­ar í gæslu­v­arðhaldi vegna máls­ins, tveir karl­menn og ein kona, og renn­ur það út 3. júní hjá þeim öll­um.

Spurður seg­ir Jón Gunn­ar að þeir sem eru í haldi séu á öll­um aldri. Sá sem varð fyr­ir of­beld­inu er aft­ur á móti eldri maður með malt­nesk rík­is­fang. Brot­in varða meinta frels­is­svipt­ingu, lík­ams­árás og fjár­kúg­un.

Skýrslu­tök­ur eru áfram í gangi og geng­ur rann­sókn­in vel, að sögn Jóns Gunn­ars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert