Saknaðarilmur sýning ársins

Unnur Ösp Stefánsdóttir í Saknaðarilmi.
Unnur Ösp Stefánsdóttir í Saknaðarilmi. Ljósmynd/Jorri

Leiksýningin Saknaðarilmur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur, sem er leikverk byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur, í leikstjórn Björns Thors og sviðsetningu Þjóðleikhússins var valin sýning ársins þegar Íslensku sviðslistaverðlaunin voru afhent í 22. sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu fyrr í kvöld. 

Leikhópurinn í Ást Fedru.
Leikhópurinn í Ást Fedru.

Alls skiptu níu sýningar með sér verðlaunum kvöldsins sem voru veitt í 19 flokkum. Flest verðlaun fengu leiksýningarnar Saknaðarilmur og Ást Fedru, eða fern verðlaun hvor sýning. Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands hlaut Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona. 

Margrét Helga Jóhannsdóttir hlustar með athygli á Brynhildi Guðjónsdóttur leikstjóra …
Margrét Helga Jóhannsdóttir hlustar með athygli á Brynhildi Guðjónsdóttur leikstjóra sem fór yfir nokkur atriði rétt fyrir sýningu á Vanja frænda 2020. Þar fór Margrét Helga með hlutverk Marínu fóstru, sem var síðasta hlutverkið sem hún lék í Borgarleikhúsinu. mbl/Ásdís

Hér má sjá heildarlista verðlaunahafa: 

  • Sýning ársins:  Saknaðarilmur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur, leikverk byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
  • Leikrit ársins: Saknaðarilmur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur, leikverk byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur í sviðsetningu Þjóðleikhússins 
    Fúsi fékk Hvatningarverðlaun valnefndar.
    Fúsi fékk Hvatningarverðlaun valnefndar. mbl.is/Eggert Johannesson

  • Hvatningarverðlaun valnefndar fyrir framúrskarandi nýbreytni í sviðslistum: Fúsi - aldur og fyrri störf. Einstök nýbreytni í leikhúsi þar sem fatlaður maður segir sögu sína með leiklistina, sem hann hefur helgað líf sitt, að vopni. Fúsi er verðugur fulltrúi listamanna sem eru án landamæra og hefur hann sett líf þeirra og list í kastljósið með sýningunni. Heiðurinn er bæði Fúsa sjálfs og leikstjórans Agnars Jóns, en saman feta þeir óhefðbundna leið til að segja brothætta sögu Fúsa á áhrifaríkan og einlægan hátt.
  • Barnasýning ársins: Hollvættir á heiði eftir Þór Túliníus í sviðsetningu Leikhópsins Svipir í samstarfi við Sláturhúsið
  • Leikstjóri ársins: Agnar Jón Egilsson fyrir sýninguna Fúsi - aldur og fyrri störf í sviðsetningu Sviðslistahópsins Monochrome í samstarfi við Borgarleikhúsið og List án landamæra
  • Leikkona ársins í aðalhlutverki: Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni Saknaðarilmur í sviðsetningu Þjóðleikhússins 
    Unnur Ösp Stefánsdóttir var leikkona ársins í aðalhlutverki.
    Unnur Ösp Stefánsdóttir var leikkona ársins í aðalhlutverki. mbl.is/Eggert Johannesson
  • Leikari ársins í aðalhlutverki: Sigurður Þór Óskarsson fyrir hlutverk sitt í sýningunni Deleríum búbónis í sviðsetningu Borgarleikhússins
  • Leikkona ársins í aukahlutverki: Vigdís Hrefna Pálsdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni Mútta Courage og börnin í sviðsetningu Þjóðleikhússins
  • Leikari ársins í aukahlutverki: Þröstur Leó Gunnarsson fyrir hlutverk sitt í sýningunni Ást Fedru í sviðsetningu Þjóðleikhússins
  • Dansari ársins: Elín Signý W. Ragnarsdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni The Simple Act of Letting go í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
  • Söngvari ársins: Heiða Árnadóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni Mörsugur í sviðsetningu Þrjátíu fingurgóma í samstarfi við Óperudaga
  • Leikmynd ársins: Guðný Hrund Sigurðardóttir, Hákon Pálsson og Rósa Ómarsdóttir fyrir sýninguna Molta í sviðsetningu Rósu Ómarsdóttur og Íslenska dansflokksins í samstarfi við Gerðarsafn
  • Búningar ársins: Filippía I. Elísdóttir fyrir sýninguna Ást Fedru í sviðsetningu Þjóðleikhússins
  • Lýsing ársins: Ásta Jónína Arnardóttir fyrir sýninguna Ást Fedru í sviðsetningu Þjóðleikhússins
  • Tónlist ársins: Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson fyrir sýninguna Saknaðarilmur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
  • Hljóðmynd ársins: Kristján Sigmundur Einarsson fyrir sýninguna Ást Fedru í sviðsetningu Þjóðleikhússins
  • Danshöfundur ársins: Rósa Ómarsdóttir fyrir sýninguna Molta í sviðsetningu Rósu Ómarsdóttur og Íslenska dansflokksins í samstarfi við Gerðarsafn
  • Dans- og sviðshreyfingar ársins: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir fyrir sýninguna Deleríum búbónis í sviðsetningu Borgarleikhússins 
  • Heiðursverðlaun 2024: Margrét Helga Jóhannsdóttir
Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Sigurður Þór Óskarsson í Deleríum búbónis.
Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Sigurður Þór Óskarsson í Deleríum búbónis. Ljósmynd/Grimur Bjarnason
Leikhópurinn í Fúsa. Leikstjórinn Agnar Jón Egilsson er lengst til …
Leikhópurinn í Fúsa. Leikstjórinn Agnar Jón Egilsson er lengst til hægri.
Agnar Jón Egilsson var valinn leikstjóri ársins fyrir sýninguna Fúsi …
Agnar Jón Egilsson var valinn leikstjóri ársins fyrir sýninguna Fúsi - aldur og fyrri störf. mbl.is/Eggert Johannesson
Hollvættir á heiði var valin barnasýning ársins á Grímunni í …
Hollvættir á heiði var valin barnasýning ársins á Grímunni í kvöld. mbl.is/Eggert Johannesson
Frá Grímuverðlaunum í kvöld.
Frá Grímuverðlaunum í kvöld. mbl.is/Eggert Johannesson
Frá Grímuverðlaunum í kvöld.
Frá Grímuverðlaunum í kvöld. Eggert Johannesson
Frá Grímuverðlaunum í kvöld.
Frá Grímuverðlaunum í kvöld. Eggert Johannesson
Frá Grímuverðlaunum í kvöld.
Frá Grímuverðlaunum í kvöld. Eggert Johannesson
Frá Grímuverðlaunum í kvöld.
Frá Grímuverðlaunum í kvöld. Eggert Johannesson
Frá Grímuverðlaunum í kvöld.
Frá Grímuverðlaunum í kvöld. Eggert Johannesson
Frá Grímuverðlaunum í kvöld.
Frá Grímuverðlaunum í kvöld. Eggert Johannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert