Ákærður fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots

Pétur Jökull Jónasson.
Pétur Jökull Jónasson.

Héraðssak­sókn­ari hef­ur ákært Pét­ur Jök­ul Jónas­son fyr­ir til­raun til stór­fellds fíkni­efna­laga­brots. Ákær­an teng­ist stóra kókaín­mál­inu svo­kallaða þar sem fjór­ir aðrir hafa þegar verið dæmd­ir fyr­ir sinn þátt.

Pét­ur Jök­ull var eft­ir­lýst­ur hjá In­terpol í tengsl­um við málið en var í fe­brú­ar hand­tek­inn við komu til Íslands. 

Hann er ákærður fyr­ir að hafa staðið að inn­flutn­ingi á 99,25 kg af kókaíni hingað til lands frá Bras­il­íu með viðkomu í borg­inni Rotter­dam í Hollandi.

Fram kem­ur í ákær­unni, sem mbl.is hef­ur und­ir hönd­um, að efn­in hafi verið fal­in í sjö trjá­drumb­um sem var komið fyr­ir í gámi. Þau voru hald­lögð af hol­lensk­um yf­ir­völd­um 30. júní 2022 og var gervi­efn­um komið fyr­ir í drumb­un­um.

Gám­ur­inn kom til Íslands aðfaranótt 25. júlí sama ár og voru drumbarn­ir fjar­lægðir úr gámn­um 4. ág­úst. Þaðan voru þeir flutt­ir til Hafn­ar­fjarðar þar sem hin ætluðu fíkni­efni voru fjar­læg.

Hluti ætluðu fíkni­efn­anna var síðan flutt­ur í bif­reið til ótil­greinds aðila til að hægt væri að koma þeim í sölu og dreif­ingu. Lög­regl­an lagði hald á hluta af ætluðu fíkni­efn­un­um í bif­reiðinni þar sem henni var lagt í bíla­stæði í Mos­fells­bæ.

Í ákær­unni er þess kraf­ist að Pét­ur Jök­ull verði dæmd­ur til refs­ing­ar og til greiðslu alls sak­ar­kostnaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert