Halla Hrund snýr aftur til Orkustofnunar

Halla Hrund Logadóttir tekur við embætti orkumálastjóra á ný í …
Halla Hrund Logadóttir tekur við embætti orkumálastjóra á ný í vikunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Halla Hrund Loga­dótt­ir snýr aft­ur til starfa hjá Orku­stofn­un í vik­unni.

Þetta staðfest­ir Bára Mjöll Þórðardótt­ir, meðeig­andi ráðgjafa­fyr­ir­tæk­is­ins Lang­brók­ar sem ann­ast sam­skipti fyr­ir hönd stofn­un­ar­inn­ar, í sam­tali við mbl.is. 

„Hún snýr aft­ur til starfa um miðja viku, lík­leg­ast á fimmtu­dag­inn,“ seg­ir Bára Mjöll. 

Halla Hrund hef­ur verið í leyfi sem for­stjóri stofn­un­ar­inn­ar síðan hún til­kynnti fram­boð sitt til embætt­is for­seta þann 7. apríl, en Sara Lind Guðbergs­dótt­ir hef­ur gegnt embætt­inu í fjar­veru Höllu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert