Veifandi Vigdís heima hjá Höllu

Myndina má sjá hér á veggnum til vinstri.
Myndina má sjá hér á veggnum til vinstri. mbl.is/Eyþór

Í stofunni heima hjá Höllu Tómasdóttur, nýkjörnum forseta, er ljósmynd af Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta.

Myndin er tekin fyrir utan heimili Vigdísar árið 1980 þegar hún ávarpaði stuðningsfólk sitt eftir að hafa verið kjörin forseti. Halla gerði hið sama í gær. Hún ávarpaði stuðningsfólk sitt fyrir utan heimili sitt í miðbæ Reykjavíkur kl. 16.

Í ávarpi sínu sagði hún það heiður lífs síns að fá að gegna embætti forseta Íslands.

Halla veifaði stuðningsfólki sínu í gær.
Halla veifaði stuðningsfólki sínu í gær. mbl.is/Eyþór

Vigdís mikil fyrirmynd

Vigdís Finnbogadóttir var á sínum tíma kjörin forseti fyrst kvenna í heiminum. Halla veður önn­ur kon­an til að gegna embætti for­seta Íslands. 

Í samtali við mbl.is í gær sagði Halla það skipta miklu máli að konur gegndu slíkum stöðum. Þá hefði Vigdís verið henni mikil fyrirmynd.

„Við vor­um svo mik­il fyr­ir­mynd fyr­ir um­heim­inn árið 1980 þegar við höfðum hug­rekki til að kjósa Vig­dísi og hún var mér og minni kyn­slóð svo mik­il fyr­ir­mynd. Ég held að við séum þegar í for­ystu fyr­ir kynja­jafn­rétti á Íslandi og ég von­ast til þess að sinna því verk­efni mjög vel, bæði inn­an sam­fé­lags­ins og utan,“ sagði Halla við mbl.is í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert