Handtekinn og yfirheyrður en síðan látinn laus

Einn var handtekinn en síðar látinn laus.
Einn var handtekinn en síðar látinn laus. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann á föstudag í tengslum við rannsókn á nokkrum tilvikum í Hafnarfirði í síðasta mánuði þar sem maður veittist að börnum.

Maðurinn var látinn laus úr haldi eftir yfirheyrslu. Málin eru enn óupplýst, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglunnar. 

Málin í forgangi

„Eins og fram hefur komið jók lögreglan eftirlit sitt í Hafnarfirði vegna þessa og því verður fram haldið,“ segir í tilkynningunni.

Kemur þar enn fremur fram að málin séu í forgangi hjá embættinu og að allt kapp sé lagt á að finna þann sem þarna sé að verki.

Fengu ábendingu um helgina

Lögreglu hafa borist ýmsar ábendingar og er þeim öllum fylgt eftir. Ein slík ábending barst um síðustu helgi. Var þá greint frá manni sem hafði veist að barni eða börnum í verslunarmiðstöðinni Firði. Var maðurinn sagður hafa hrópað að þeim fúkyrði. 

Höfð voru afskipti af umræddum manni en hann er ekki með neinum hætti talinn tengjast áðurnefndum atvikum í bænum í maí, að því er fram kemur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert