Veitingahús gjaldþrota nánast í hverri viku

Aðalgeir Ásvaldsson hefur þungar áhyggjur af stöðu veitingahúsa.
Aðalgeir Ásvaldsson hefur þungar áhyggjur af stöðu veitingahúsa. Ljósmynd/Aðsend

Fleiri veit­inga­hús urðu gjaldþrota á síðasta ári en á ár­un­um sem kennd eru við heims­far­ald­ur kór­ónu­veiru og fjöldi veit­inga­húsa hef­ur orðið gjaldþrota á þessu ári. 

„Við höf­um þung­ar áhyggj­ur af gjaldþrot­um í grein­inni og róður­inn er orðinn mjög þung­ur,“ seg­ir Aðal­geir Ásvalds­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fyr­ir­tækja á veit­inga­markaði (SVEIT), í sam­tali við mbl.is. 

Hann seg­ir að veit­inga­hús verði gjaldþrota nán­ast í hverri viku. 

Laun helm­ing­ur af veltu veit­ingastaða

Aðal­geir tel­ur ástæðuna að mestu vera hátt vaxta­stig í land­inu, fækk­un ferðamanna og að neysla viðskipta­vina hafi breyst. 

Þá sé vöru­verð orðið hátt, leiga á hús­næði hafi hækkað og laun starfs­manna hafi hækkað. Aðal­geir seg­ir laun vera um helm­ing­ur af veltu allra veit­inga­húsa. 

Veit­inga­menn hafa ít­rekað lýst áhyggj­um sín­um af rekstr­ar­um­hverfi veit­ingastaða.

Sam­tök at­vinnu­lífs­ins hafi skapað erfitt starfs­um­hverfi

Aðal­geir teng­ir stöðu grein­ar­inn­ar meðal ann­ars til kjara­samn­inga sem grein­in hef­ur fengið. 

„Það er gríðarlega erfitt að vinna í þessu starfs­um­hverfi sem Sam­tök at­vinnu­lífs­ins (SA) og stétt­ar­fé­lög­in hafa skapað okk­ur. Við fáum enga aðkomu að gerð kjara­samn­inga sem er mjög sorg­legt,“ seg­ir Aðal­geir. 

Þá seg­ir Aðal­geir að SVEIT hafi ít­rekað reynt að kom­ast að samn­inga­borðinu til að rödd veit­inga­húsa­eig­enda fái hljóm­grunn, en seg­ir að ekki sé vilji fyr­ir því hjá SA. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert