Landsréttur hefur hafnað kröfu lögreglunnar á Suðurlandi um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir pari sem liggur undir grun um ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum í lok apríl.
Farið var fram á að gæsluvarðhaldið yrði framlengt vegna almannahagsmuna.
Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir þetta í samtali við mbl.is. Enginn er í því í haldi lögreglu vegna málsins.
Rannsókn gengur vel að sögn Jóns Gunnars, en hann segir að um mikla vinnu sé að ræða.
Maðurinn sem varð fyrir ofbeldinu er með maltneskt ríkisfang.
Brotin eru alvarleg en þau varða meinta frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun.