Rannsókn á kynferðisbroti í Hafnarfirði á laugardag er enn í fullum gangi og gengur ágætlega, að sögn Gríms Grímssonar, yfirlögregluþjóns miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu.
Kynferðisbrotið er sagt hafa átt sé stað um borð í grænlenska togaranum Polar Nanoq, en lögregla hefur ekki viljað staðfesta þessi tengsl.
Þrír voru handteknir vegna málsins en þeim hefur öllum verið sleppt, að því er Grímur segir í samtali við mbl.is. Hann gat lítið annað tjáð sig um málið á þessu stigi.
„Almennt séð er það þannig með kynferðisbrotamál að þau eru ekkert endilega til umfjöllunar á rannsóknarstigi. Þegar og ef að það er gefin út ákæra, þá er það náttúrulega opinbert,“ segir Grímur.
Óvíst er hvenær og hvort ákæra gæti verið gefin út.