Útgerð kaupir íbúðir fyrir starfsmenn

Ingi Jóhann Guðmundsson segir að ástæða kaupanna sé sú að …
Ingi Jóhann Guðmundsson segir að ástæða kaupanna sé sú að verið sé að koma þaki yfir höfuðið á skipverjum sem starfa hjá útgerðinni og fjölskyldum þeirra. mbl.is

Útgerðin Gjögur hf. hefur fest kaup á sextán íbúðum í Sunnusmára í Kópavogi. Þetta staðfestir Ingi Jóhann Guðmundsson, framkvæmdastjóri félagsins, í samtali við Morgunblaðið.

Hann segir að ástæða kaupanna sé sú að verið sé að koma þaki yfir höfuðið á skipverjum sem starfa hjá útgerðinni og fjölskyldum þeirra.„Það má ekki búa þar [Grindavík], menn voru ekki með húsnæði og þessu varð að kippa í liðinn,“ segir Ingi Jóhann.

Togskip félagsins, Áskell og Vörður eru gerð út frá Grindavík og áhafnir að mesta skipaðar þaðan. Núna að undanförnu hefur þó aðallega verið landað aflanum í Hafnarfirði.

Anda með nefinu

-Heldurðu að Gjögur muni áfram gera út frá Grindavík í framtíðinni?

„Það verður bara að anda með nefinu. Það eru enn jarðhræringar þarna og það verður að sjá hvernig það þróast,“ segir Ingi.

Gjögur starfrækir einnig fiskvinnsluhús á Grenivík sem framleiðir fjölbreyttar fiskafurðir. Um 30 starfsmenn starfa í fiskvinnslunni. Hákon EA 148 er á uppsjávarveiðum og er áhöfnin frá Grenivík og Eyjafjarðarsvæðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka