Talsverð gosmengun hefur verið frá eldgosinu við Sundhnúkagíga víða á höfuðborgarsvæðinu og á vestanverðu Suðurlandi í dag.
Á vef Veðurstofunnar segir að hæstu gildi brennisteinstvíoxíð (SO2) á höfuðborgarsvæðinu séu komin yfir 500 míkrógrömm á rúmmetra og viðbúið sé að mengunin verði viðvarandi í allan dag.
Fólk sem er viðkvæmt fyrir í öndunarfærum getur fundið fyrir óþægindum.
„Þegar dagur er langur, eins og nú er, eru því auknar líkur á að gosmóða myndist. Gosmóða mælist ekki á SO2 gasmælum en sést sem blá móða þegar ákveðnum styrk er náð,“ segir í tilkynningu á vef Veðurstofunnar.
Hægt er að fylgjast með loftgæðum á loftgæðamælum Umhverfisstofnunar.