Jane Goodall ávarpaði ráðstefnu í Hörpu

„Við erum að ganga í gegnum nokkuð dimma tíma,“ sagði doktor Jane Goodall, mannfræðingur og einn fræg­asti dýra- og um­hverf­is­vernd­ar­sinni heims, í myndbandsávarpi á Velsældarþingi í Hörpu í dag. 

Vísaði Goodall til þeirra átaka sem nú geisa í heiminum, mannréttindabrota og umhverfisvandamála.

Vel­sæld­arþing er alþjóðleg ráðstefna um vel­sæld sem embætti land­lækn­is stend­ur fyr­ir en þetta er í annað sinn sem þingið er haldið.

Goodall ávarpaði þingið í dag.
Goodall ávarpaði þingið í dag. mbl.is/Inga

Erum að eyðileggja heimilið okkar

Goodall hefur varið stórum hluta ævi sinnar í að rannsaka simpansa. Í ávarpi sínu sagði hún þá mjög líka mönnum. Helsti munurinn á simpönsum og mönnum væri mannleg greind.

„Aðeins við mennirnir getum rannsakað og reynt að byrja skilja leyndardóma sólkerfisins. Hvernig stendur á því að við, greindasta dýrategundin á jörðinni, séum að eyðileggja okkar eina heimili, jörðina. Það virðist vera sambandsleysi á milli okkar snjöllu heila og mannshjartna okkar,“ sagði Goodall.

Ávarp Goodall má hlusta á í spilaranum hér að ofan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert