Karlmaður á þrítugsaldri lést í umferðarslysi

Banaslysið í Borgarfirði á sunnudagskvöld var það ellefta í umferðinni …
Banaslysið í Borgarfirði á sunnudagskvöld var það ellefta í umferðinni það sem af er ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ökumaður fólksbifreiðarinnar sem lést í umferðarslysi á Vesturlandsvegi skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal í Borgarfirði á sunnudagskvöld var karlmaður á þrítugsaldri.

Maðurinn var Íslendingur, fæddur árið 1999, og var búsettur hér á landi.

Ellefta banaslysið það sem af er ári

Slysið varð með þeim hætti að fólksbifreið sem ekið var norður skall framan á jeppabifreið sem ekið var til suðurs. Ökumaður fólksbifreiðarinnar lést en ökumaður og farþegi í jeppabifreiðinni voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðhlynningar á Landsspítalann.

Að sögn Jóns Ólasonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Vesturlandi, eru tildrög slyssins til rannsóknar en þetta var ellefta banaslysið í umferðinni það sem af er ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka