Gosmóðan sem nú liggur yfir höfuðborginni kann að halda því áfram út daginn í dag. Seint í kvöld er þó búist við breyttri vindátt og gæti mengunin þá borist yfir á Suðurnes.
Þetta segir Þorsteinn Jóhannesson sérfræðingur í loftmengun hjá Umhverfisstofnun í samtali við mbl.is.
„Þetta eru það há gildi að við ráðleggjum fólki að forðast óþarfa útiveru, ekki vera í íþróttaiðkun utandyra og þá sérstaklega börn,“ segir Þorsteinn í samtali við mbl.is.
Bendir hann á að það sé ákveðin vörn að halda leikskólakrökkum innandyra. Mengunin berist þó á endanum inn en ekki í sama magni.
Þorsteinn segir mengunina það mikla að þeir sem glíma við veikindi, til dæmis börn og fullorðnir með astma, gætu fundið fyrir auknum einkennum.
Mikið álag hefur verið á loftgæðavef Umhverfisstofnunar eftir að bera tók á menguninni í morgun.
„Við töldum okkur fyrir einhverjum gosum síðan vera búin að búa hana undir mikið álag en það var greinilega að sýna sig í morgun að hún var ekki að þola það,“ segir Þorsteinn spurður út í vefsíðuna.
Þorsteinn ráðleggur fólki að fylgjast vel með þeirra staðsetningu á vefnum loftgæði.is og lesa sér til um viðbrögð við loftmengun.