Myglan hefur áhrif á verð og sölu

Fyrrum höfuðstöðvar Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68.
Fyrrum höfuðstöðvar Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68. Ljósmynd/Landsvirkjun

Hvorki eru áhuga­sam­ir kaup­end­ur né verðviðmið ljós þegar kem­ur að sölu á fyrr­um höfuðstöðvum Lands­virkj­un­ar að Háa­leit­is­braut 68 í Reykja­vík.

Þetta staðfest­ir Ragn­hild­ur Sverr­is­dótt­ir, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­virkj­un­ar í sam­tali við mbl.is

Í til­kynn­ingu frá Lands­virkj­un í morg­un kom fram að ákveðið hefði verið að selja höfuðstöðvar fyr­ir­tæk­is­ins til tæp­lega hálfr­ar ald­ar.

Eiga eft­ir að ákveða verð

„Þetta eru bara fyrstu skref­in og við eig­um al­veg eft­ir að ákveða hvernig söl­unni verður háttað og hvert verðið verður. Það greind­ist þarna mygla sem hef­ur áhrif,“ seg­ir Ragn­hild­ur.

Spurð hvort Lands­virkj­un sé kom­in í sam­band við áhuga­sama kaup­end­ur á fyrr­um höfuðstöðvun­um, svar­ar hún því neit­andi og seg­ir að það sé ekki komið neitt áleiðis.

„Það þarf að skoða hvort það sé mygla í hús­inu, við höf­um ekki verið þarna inni núna í ein­hverja mánuði og ég reikna fast­lega með því að þeir sem hafi áhuga muni gera ít­ar­lega út­tekt á þessu húsi áður en það er ráðist í ein­hverj­ar fram­kvæmd­ir eða kaup,“ seg­ir Ragn­hild­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert