Myndir: Katrín leiddi gesti um Þingvelli

Katrín Jakobsdóttir fjallaði um lýðveldið Ísland, stjórnarskrána, Þingvelli og þjóðarminnið.
Katrín Jakobsdóttir fjallaði um lýðveldið Ísland, stjórnarskrána, Þingvelli og þjóðarminnið. mbl.is/Arnþór

Fyrrverandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi, Katrín Jakobsdóttir, leiddi gesti og gangandi um Þingvelli í gærkvöldi í tilefni af því að 80 ár eru liðin frá stofnun lýðveldis Íslands.

Fjallaði Katrín þar um lýðveldið Ísland, stjórnarskrána, Þingvelli og þjóðarminnið.

mbl.is/Arnþór

„Það stóð til, í upphafi árs, að ég myndi leiða þessa göngu sem forsætisráðherra. Nú er ég ekki lengur forsætisráðherra en Þingvellir vildu ennþá fá mig,“ sagði Katrín í samtali við Morgunblaðið.

Gestir hlustuðu gaumgæfilega á Katrínu.
Gestir hlustuðu gaumgæfilega á Katrínu. mbl.is/Arnþór

Nefndi Katrín að áður en hún fór út í stjórnmál hefði hún mikið rannsakað hvernig þjóðerni birtist í bókmenntum og hvernig Ísland byggði sjálfsmynd sína sem þjóð í bókmenntum.

mbl.is/Arnþór

„Ég ætla að fjalla hér um Þingvelli sem stað í okkar þjóðarminni og fer sérstaklega yfir Þingvelli í Njálu, Þingvelli í Íslandsklukkunni, allar þær þjóðhátíðir sem haldnar hafa verið á Þingvöllum og hvað þessi staður merkir fyrir mig persónulega,“ sagði Katrín og bætti við:

„Ég held að þetta sé einn af örfáum stöðum á Íslandi sem eru virkilega hluti af einhverju sameiginlegu minni þjóðarinnar.“

mbl.is/Arnþór
mbl.is/Arnþór
mbl.is/Arnþór
mbl.is/Arnþór
Katrín Jakobsdóttir á Þingvöllum í gærkvöldi.
Katrín Jakobsdóttir á Þingvöllum í gærkvöldi. mbl.is/Arnþór
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka