Tveimur er haldið sofandi eftir rútuslysið

Viðbragðsaðilar á svæðinu í Öxnadal í gær.
Viðbragðsaðilar á svæðinu í Öxnadal í gær. mbl.is/Arnþór

Alls voru 22 erlendir ferðamenn í rútunni sem valt í Öxnadal síðdegis í gær. Fimm voru fluttir með þyrlu og sjúkraflugvélum á Landspítalann og eru þar á gjörgæsludeild. Tveimur er haldið sofandi í öndunarvél en þeir eru sagðir vera með stöðug lífsmörk.

Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Allir frá Tékklandi

Í tilkynningunni segir að fimm hafi verið lagðir inn á sjúkrahúsið á Akureyri. Nánari upplýsingar um áverka liggja ekki fyrir hjá lögreglu á þessari stundu. 

Eftir læknisskoðun fengu aðrir farþegar liðsinni frá fjöldahjálparstöð Rauða krossins, sem opnuð var á Akureyri og voru síðan aðstoðaðir við að komast í gistipláss.

Fram kemur í tilkynningunni að ferðalangarnir hafi allir verið frá Tékklandi og hefur lögreglan verið í sambandi við ræðismann Tékklands á Íslandi vegna slyssins.

Rannsókn og vettvangsvinnu lauk á fjórða tímanum í nótt og var vegurinn þá opnaður á ný fyrir almenna umferð. Enn er unnið að því að hreinsa vettvang og þá sérstaklega olíu sem komst í Öxnadalsá.

„Rannsókn á slysi sem þessu er mjög viðamikil og miðar að því að leiða í ljós orsakir slyssins. Vettvangur er m.a. ljósmyndaður, myndaður úr lofti með drónum, skannaður með þrívíddarskanna, mældur upp og dreifing braks skrásett. Vegurinn sjálfur er rannsakaður, yfirborð hans skoðað, vegaxlir, merkingar og þess háttar. Þá er ökutækið sjálft rannsakað gaumgæfilega, hjólbarðar, stýrisbúnaður, hemlabúnaður og ökuriti. Ástand og staða öryggisbelta er kannað o.s.frv. Ástand ökumanns er ætíð kannað sérstaklega, réttindi hans og reynsla,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Vísbendingar um að hluti farþega hafi ekki verið í beltum

Í tilkynningunni segir vísbendingar séu um að hluti farþega hafi ekki verið í öryggisbeltum þegar rútan valt og sé það hluti af rannsókninni að upplýsa um það. 

Lögreglan á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins en Rannsóknarnefnd samgönguslysa gerir einnig sína rannsókn.

Yfirlitsmynd af vettvangi úr dróna lögreglunnar.
Yfirlitsmynd af vettvangi úr dróna lögreglunnar. Ljósmynd/Lögreglan á Norðurlandi eystra

Kristófer Hafsteinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri, segir við mbl.is að rannsókn á slysinu sé í fullum gangi. Hann segir að ökumaðurinn og farþegarnir 22 séu allir frá Tékklandi og að tékkneskt ferðaþjónustufyrirtæki hafi skipulagt ferðina.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka