Mikið tjón hefur orðið í nokkrum verslunum Kringlunnar eftir að eldur kviknaði í þaki byggingarinnar í gær.
Blaðamaður mbl.is kíkti í Kringluna í morgun og kannaði stöðuna.
Svo virðist sem að tjónið sé mest í Gallerí 17 og Macland. Í myndbandinu hér að ofan má sjá mann vinna að því að þurrka gólf Maclands. Þá virðist ekki vera mikið tjón á fyrstu hæð, þó var bleyta á gólfi við rúllustigann sem leiðir niður að verslun Útilífs.
Nokkrir verslunareigendur voru á svæðinu þegar blaðamann bar að garði, en flestir voru þeir önnum kafnir við að hlúa að verslunum sínum.