Samfylkingin mun styðja vantrauststillöguna

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að flokkurinn muni styðja …
Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að flokkurinn muni styðja vantrauststillögu Miðflokksins. mbl.is/Árni Sæberg

Þingmenn Samfylkingarinnar munu greiða at­kvæði með van­traust­stil­lögu Miðflokks­ins á hend­ur Bjarkeyju Olsen Gunn­ars­dótt­ur mat­vælaráðherra.

Þetta segir Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í samtali við mbl.is

„Við lítum ekki svo á að það sé okkar hlutverk að styðja ráðherra vantrausti. Ráðherra situr ekki í embætti með stuðningi Samfylkingarinnar og við vantreystum ríkisstjórninni í heild sinni,“ segir Jóhann.

Þjóðþrifaverk“ að losna við ríkisstjórnina

Hann grunar það sterklega að stjórnarandstaðan muni kjósa í takt gegn Bjarkeyju.

Þingflokksformaður Viðreisnar greindi frá því í samtali við mbl.is að flokkurinn myndi styðja tillöguna og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að tillagan væri lögð fram á málefnalegum forsendum.

„Ég held að allir finni það að það er þjóðþrifaverk að losna sem fyrst við þessa ríkisstjórn og það væri skringilegt fyrir okkur í stjórnarandstöðu að styðja einstaka ráðherra, það er ekki okkar hlutverk,“ segir Jóhann.

Þess má vænta að greidd verði atkvæði um tillöguna á morgun eða hinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert