Göngunum lokað í þriðja sinn

Hvalfjarðargöngum hefur verið lokað í þrígang í dag.
Hvalfjarðargöngum hefur verið lokað í þrígang í dag. mbl.is/Eggert

Hvalfjarðargöngunum hefur verið lokað á ný vegna bilaðs bíls í göngunum. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Þar segir jafnframt að dráttarbíll sé mættur á svæðið til að fjarlægja bílinn og því sé stutt í opnun. 

Er þetta í þriðja sinn í dag sem göngunum er lokað, en þeim var fyrst lokað skömmu eftir hádegi í dag vegna hjólreiðarmanns sem átti þar leið um. Göngin voru opnuð á ný um hálftíma seinna en rétt fyrir klukkan eitt var þeim lokað á ný vegna tveggja bíla áreksturs. 

Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn en Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborg­ar­svæðinu, seg­ir í sam­tali við mbl.is að eng­inn sé í lífs­hættu.

Vegagerðinn biðlar til vegfarenda sem eiga leið um gönginn að halda nægi­lega löngu bili á milli bíla og sýna til­lits­semi, en nokkur umferð er til Norðurs meðal annars vegna Norðuráls móts í fótbolta sem fer fram á Akranesi um helgina. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert