Malbikaður verður kafli í Lönguhlíð frá Miklubraut að Flókagötu frá klukkan 9 til 12 í dag.
Einnig mun verktaki malbika Bogahlíð frá klukkan 11 til 17 í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Malbikun við Klapparstíg hefur aftur á móti verið frestað.