Í dag er spáð norðaustan 5 til 13 metrum á sekúndu. Rigning verður eða súld með köflum, einkum um landið suðaustan- og síðar austanvert.
Hiti verður á bilinu 5 til 14 stig, hlýjast suðvestanlands.
Norðaustan 8-13 m/s verða norðvestan til á morgun, annars hægari vindur. Rigning með köflum, en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti verður á bilinu 5 til 12 stig.