Vildi sauma þjóðbúning en lenti ítrekað á vegg

Hér má sjá Sólrúnu í búningi ömmu sinnar og Emily …
Hér má sjá Sólrúnu í búningi ömmu sinnar og Emily Lehman, klædda búningnum sem Sólrún saumaði á dóttur sína. mbl.is/Ellen

Sól­rún Ásta Steins­dótt­ir klæðskera­meist­ari var ein þeirra sem spókaði sig um á 17. júní klædd ís­lensk­um þjóðbún­ingi. Bún­ing­inn erfði hún frá ömmu sinni og nöfnu og hef­ur hún haldið mikið upp á hann alla tíð.

Árið 1997, þegar Sól­rún var 17 ára, ákvað hún að sauma nýtt pils fyr­ir bún­ing­inn og þá var ekki aft­ur snúið, áhug­inn sit­ur enn eft­ir.

„Þegar ég var 17 ára þá saumaði ég nýja skyrtu af því að það fylgdi ekki skyrta með og saumaði mér nýtt pils af því hitt var aðeins of stutt og ég vildi hafa það al­veg skósítt. Þetta er erfðagrip­ur og mér þykir ótrú­lega vænt um hann, hún [amma] sem sagt dó áður en ég fædd­ist þannig þetta er í raun­inni eina teng­ing­in mín við hana,“ seg­ir Sól­rún.

Auðveld­ara fyr­ir 26 árum 

Að sögn Sól­rún­ar reynd­ist frem­ur ein­falt að fá leiðbein­ing­ar um hvernig ætti að sauma þjóðbún­inga­pils og skyrtu og gera vel árið 1997. Á sín­um tíma hafi hún fengið upp­lýs­ing­arn­ar hjá Heim­il­isiðnaðarfé­lag­inu.

Þegar hún ætlaði að sauma þjóðbún­ing fyr­ir dótt­ur sína í fyrra í til­efni af peysu­fata­degi Verzl­un­ar­skóla Íslands, 26 árum síðar, var öld­in önn­ur. Leiðbein­inga­bækling­ur­inn sem hún hafði fengið var týnd­ur og tröll­um gef­inn og virt­ist hvergi að finna hjá Heim­il­isiðnaðarfé­lag­inu er þangað var leitað.

Á end­an­um fannst þó hluti nauðsyn­legra leiðbein­inga og Sól­rún sótti nám­skeið til þess að brúa bilið, til dæm­is til þess að læra að vefa og baldera.

„Eins og það eru mikl­ar regl­ur um þjóðbún­ing­inn þá virt­ust ekki vera til nein­ar ritaðar, aðgengi­leg­ar regl­ur, það er nátt­úru­lega til fullt af möpp­um í Heim­il­isiðnaðarfé­lag­inu en það vant­ar svo að það sé til eitt­hvað hand­hægt,“ seg­ir Sól­rún.

Þekk­ing­in lif­ir hjá fáum

Þá seg­ir hún aðgengi að upp­lýs­ing­um fyr­ir fólk sem langi að sauma sér þjóðbún­ing frá grunni ekki mikið og það kosti sitt í formi nám­skeiða.

„Þekk­ing­in virðist lifa hjá svo­lítið fáum og aðgengi að þekk­ing­unni er svo­lítið dýrt. Það ger­ir svona stigs­mun á hverj­ir fá sér bún­ing,“ seg­ir Sól­rún. „Þarna mynd­ast þessi gjá.“

Með sinn þekk­ing­ar­grunn gat Sól­rún klórað sig fram úr þeim vanda sem kom upp hverju sinni en vegg­irn­ir sem hún lenti á kveiktu þá hug­mynd að koma upp sauma­klúbbi í kring­um þjóðbún­ingasaum, ásamt fleir­um.

„Við byrjuðum umræðu í fyrra­sum­ar inni í hópn­um „Þjóðbún­ing­ar – áhuga­fólk“ um að stofna sauma­klúbb þar sem við gæt­um bara hist, kon­ur sem eru sjálf­ar að reyna að finna út úr þjóðbún­ing­un­um. Við sem höf­um kannski ekki efni eða tök á að fara á nám­skeið en okk­ur lang­ar í sam­fé­lagi með ein­hverj­um öðrum að finna svo­lítið bara út úr þessu af því það er hell­ings þekk­ing sem er samt úti í sam­fé­lag­inu og rosa mis­mun­andi,“ seg­ir Sól­rún og nefn­ir að fólk sé vant mis­mun­andi aðferðum þegar komi að saumn­um.

Best ef þetta væri aðgengi­legt á YouTu­be

Með því að hefja umræðuna og stofna sauma­klúbb vilji þær búa til vett­vang til þess að miðla þekk­ingu til þeirra sem hafi áhuga á. Hug­mynd­in hef­ur legið í dvala en helst vildi Sól­rún að leiðbein­ing­arn­ar sem um ræðir væru aðgengi­leg­ar á YouTu­be.

„17. júní er ágæt­is spark í rass­inn að fara af stað aft­ur. Það er ótrú­lega mik­ill vilji heyr­ist mér úti í sam­fé­lag­inu hjá kon­um til þess að gera bún­ing­inn sýni­legri. Gera hann aðgengi­legri og að þú þurf­ir ekki að eiga millj­ón til þess að geta klætt þig upp á 17. Júní held­ur gæt­irðu kannski gert það fyr­ir eitt­hvað minna,“ seg­ir Sól­rún.

Menn­ing­ar­arf­leifð og ótrú­leg saga

„Mig lang­ar að búa til vett­vang þar sem ein kann eitt og önn­ur kann annað og við get­um kannski stutt hvora aðra í þess­ari veg­ferð,“ seg­ir Sól­rún og bæt­ir við:

„Þetta er bæði menn­ing­ar­arf­leifð og ótrú­leg saga sem er á bak við hann og teng­ing við for­mæður okk­ar en aðallega er þetta eitt­hvað sem sam­ein­ar. Maður fer niður í bæ í upp­hlut á 17. júní og bros­ir til annarra sem eru í upp­hlut. Ég myndi vilja sjá miklu fleiri í þjóðbún­ing­um á Íslandi og myndi vilja sjá meiri notk­un á bún­ing­un­um.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert