Héraðsdómi gert að taka málið fyrir

Héraðsdómi Reykjavíkur hefur verið falið að taka fyrir mál Péturs …
Héraðsdómi Reykjavíkur hefur verið falið að taka fyrir mál Péturs Jökuls þrátt fyrir ákvörðun um að vísa málinu frá dómnum í síðustu viku.

Lands­rétt­ur hef­ur fellt úr gildi ákvörðun Héraðsdóms Reykja­vík­ur um að vísa máli Pét­urs Jök­uls Jónas­son­ar frá dómi. Héraðsdómi ber því að taka málið til meðferðar.

Þetta staðfest­ir Karl Ingi Vil­bergs­son, sak­sókn­ari hjá héraðssak­sókn­ara, í sam­tali við mbl.is og bæt­ir við að nú fari málið sína hefðbundnu leið. RÚV greindi fyrst frá.

Um er að ræða stóra kókaín­málið svo­kallaða þar sem þrír aðrir hafa þegar verið dæmd­ir fyr­ir sinn þátt. Pét­ur Jök­ull var eft­ir­lýst­ur hjá In­terpol í tengsl­um við málið en var í fe­brú­ar hand­tek­inn við komu til Íslands.

Héraðsdómi gert að taka málið fyr­ir

Ákær­an á hend­ur Pétri Jökli var þing­fest í Héraðsdómi Reykja­vík­ur í upp­hafi mánaðar­ins. Það var síðan í síðustu viku sem mál­inu var vísað frá þar sem ekki þótti nægi­lega skýrt hver aðkoma Pét­urs Jök­uls hefði verið í mál­inu. 

Héraðssak­sókn­ari kærði þenn­an úr­sk­urð héraðsdóms til Lands­rétt­ar sem nú hef­ur tekið ákvörðun og falið Héraðsdómi Reykja­vík­ur að taka málið fyr­ir. 

Gert að sæta gæslu­v­arðhaldi til 15. júlí 

Kem­ur þessi ákvörðun í kjöl­far úr­sk­urðar Lands­rétt­ar frá því á föstu­dag­inn þar sem Lands­rétt­ur staðfesti ákvörðun héraðsdóms, frá því áður en mál­inu var vísað frá dómn­um, um að Pét­ur Jök­ull skyldi sæta gæslu­v­arðhaldi til 15. júlí. 

Pét­ur er ákærður fyr­ir að hafa staðið að inn­flutn­ingi á 99,25 kg af kókaíni hingað til lands frá Bras­il­íu með viðkomu í borg­inni Rotter­dam í Hollandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert